21nóvember

Sannur íslenskur karlmađur

Stelpur...tékkiði þennan...

elegant

Hann kann að klæða sig... enda lögfræðinemi...

Kokkurinn

Hann kann að elda...

Skógarhöggsmaðurinn

Hann er sannur íslenskur karlmaður sem heggur tré, fer nakinn í ískaldan vetrarsjóinn, veiðir rjúpur og gæsir, étur svið og slátur og drekkur brennivín og vodka í mysu...


boltastrákur

Hann kann að sparka í bolta...

bíllinn

Hann á flottann bíl...

Síðast en ekki síst.. þá spilar hann á gítar og trommur og semur ljóð...


Stelpur, ég kynni fyrir ykkur Stefán Eyjólfsson yfirleitt kallaður Stebbi Eyjólfs.

Látið þennan grip ekki framhjá ykkur fara... Hafið bara samband ;)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -

21. nóvember 2007 klukkan 01:32
Tinna Mark Antonsdóttir
10 athugasemdir
02nóvember

pćling...

Strengir eða harðsperrur?

-Ástar- og saknaðarkveðju -
02. nóvember 2007 klukkan 13:43
Tinna Mark Antonsdóttir
10 athugasemdir
30október

Snjókorn falla...

Snjókorn falla... á allt og alla... börnin leika.. og skemmta sér...

Já, eins og segir í jólalaginu skemmtilega þá eru snjókornin heldur betur farin að falla og ég held bara að ég sé að fíla það :) Það þýðir allavega að það styttist í jólin Glottandi
Elín sjúkraþjálfarinn minn var einmitt að segja mér að 4 ára sonur hennar hefði spurt hana um daginn hvort að jólin væru nú ekki að fara að koma.. Hún sagði honum að það væri nú svolítið í þau, fyrst kæmi vetur, svo kæmi snjór og svo kæmu jólin.. Sá stutti var heldur betur sáttur um helgina þegar það var kominn snjór og dró fram jólasveinabókina sína og fór að segja ömmu sinni frá þvörugám, gámasleiki, stekkjagám og fleiri góðum sveinum Hlæjandi Ég er ekki frá því að ég sé bara jafn spennt og hann að fá jólin :)

En aftur að snjónum.. Þótt honum fylgi bleyta og kuldi og eitthvað.. þá fylgir honum einn risastór kostur.. Það er nefnilega birta.. Maður verður alveg agalega þunglyndur í þessu myrkri og leiðindum á þessum árstíma áður en jólaljósin koma og þá finnst mér bara fínt að fá snjóinn til að lýsa upp tilveruna :)

Jæja, rafmagnsfræði kallar :)

- Ástar- og saknaðarkveðjur - Tinna snjókall Ullandi
30. október 2007 klukkan 13:20
Tinna Mark Antonsdóttir
5 athugasemdir
29október

HAHAHAHA :)

Ok, tékkiði þetta.. shiiiiit of steikt !!! Brosandi


http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1299546


Heimsmet í hamborgaraáti

Joey Chestnut, 23 ára Kalíforníubúi, setti í dag nýtt heimsmet í hamborgaraáti þegar hann sporðrenndi 103 hamborgurum á átta mínútum á fjórða heimsmeistaramótinu í þessari íþróttagrein, sem fór fram í Chattanooga í Tennessee.

Gamla metið átti Japaninn Takeru Kobayashi, 97 hamborgara, en það var sett á síðasta móti.

Brad Wahl, aðstoðarforstjóri The Krystal Company, sem stendur fyrir mótinu, líkti metinu í dag við það þegar Roger Bannister hljóp míluna fyrstur á undir fjórum mínútum fyrir hálfri öld en það var talið eitt helsta íþróttaafrek 20. aldar.

Kobayashi, sem hafði unnið þrjú fyrstu mótin, tók ekki þátt vegna þess að hann hefur ekki náð sér eftir endajaxlsdrátt í júní. Kobayashi hefur einnig verið illsigrandi í pylsuáti en Chestnut sigraði hann í árlegu pylsukappáti á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna í sumar.

 

8 mín!! Þetta á bara ekki að vera hægt.. úff

-Ástar- og saknðarkveðjur -
29. október 2007 klukkan 00:27
Tinna Mark Antonsdóttir
3 athugasemdir
25október

Nýjar myndir :)

Hææææææ..

Ég er svona að gæla við það að byrja að blogga aftur.. Sjáum hvernig fer..

Ég var að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna mína hérna til hliðar frá KSÍ-hófinu og Alabama...

En allavega..

Ég fór í bíó um daginn.. Einar Ingvi var svo almennilegur að bjóða mér með sér á Good luck Chuck og kom myndin mér svona líka skemmtilega á óvart.. Bjóst við ákkúrat ENGU en ég endaði á því að vera með kjánahroll alla myndina og hlæja bara heilmikið..

En það var eitt í myndinni sem mér fannst brjálað krúttlegt.. En það eru sko mörgæsir í myndinni og það er verið að segja frá því að þegar mörgæsir eru "að gefa annarri mörgæs undir fótinn" þá gera þær það í orðsins fyllstu merkingu.. Það er nefnilega þannig að kalla mörgæsin fer og finnur fallegasta steininn sem hann getur fundið og leggur hann svo fyrir framan fæturna á konu mörgæsinni og ef að hún samþykkir steininn þá verða þau saman alla ævi.. Hversu krúttlegt? Brosandi

Heyrðu ég rak augun í þessa frétt á mbl.is áðan http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1298818.. Það yrði náttúrulega BARA frábært ef að þetta frumvarp næði í gegn! Stofnfrumurannsóknir eru  þvílíkt spennandi viðfangsefni og eiga örugglega eftir að koma fram með margar byltingakenndar lausnir á ýmsum sjúkdómum í framtíðinni.. Áfram Guðlaugur Þór að berjast fyrir þessu!

En jæja, látum þetta duga í bili.

- Ástar- og saknaðarkveðju -
25. október 2007 klukkan 13:00
Tinna Mark Antonsdóttir
1 athugasemd
22ágúst

20.000 kaffibollum síđar

Hæbb.

Ég allt í einu fáránlega löngun til þess að blogga... og þar sem ég er að fara í próf eftir 2 daga og hef ALLS EKKI tíma til þess þá ákvað ég að splæsa í eitt blogg :)

Heyrðu, ég lenti í slag við geitung áðan.. jebb geitung!! Ég sat hérna við eldhúsborðið í makindum mínum að lesa mbl.is.. nývöknuð að búa mig undir að halda áfram að læra.. heyri ég þá ekki allt einu bara suð við eyrað á mér og ég náttúrulega truflaðist af hræðslu, stökk upp úr stólnum og hljóp út.. hafði samt vit á því að grípa stílabók með mér í leiðinni.. svo stend ég úti í smá stund og íhuga þetta aðeins.. svolítið heimskulegt að ég sem er svona 100 sinnum stærri en flugan ætti nú ekki að vera hrædd við hana.. svo ég ákvað að vera brjálað hugrökk og fer inn aftur með stílabókina að vopni.. til að gera langa sögu stutta þá þurfti ég að fara 3 út aftur, brjóta eitt glas og fá næstum hjartaáfall áður en flugugerpið drullaðist til að fljúga út um svalahurðina aftur.. En hey, bæði ég og flugan lifðum þetta af.. Ég náði samt einu ágætu höggi á hana.. Kostaði glasið..

ok, ég skrifaði þetta í dag og svo gleymdi ég að ég var að blogga svo eg skrifaði bara ekkert meira og nenni ekki að skrifa meira núna svo ég ætla bara að hætta núna.

- Ástar-og saknaðarkveðjur -
22. ágúst 2007 klukkan 23:34
Tinna Mark Antonsdóttir
8 athugasemdir
05maí

...

Kæra dagbók
Ég veit að ég er búin að vanrækja þig undanfarið en það er bara því að ég er búin að vera svo dugleg að sofa hjá öllum eiginmönnunum mínum og hjásvæfunum. Þetta er að verða svolítið challange að koma þeim fyrir á mismunandi tímum, því þeir vilja allir hitta mig á hverju einasta kvöldi. Eins og þú veist hef ég gaman af þv í að nefna hlutina mína og ber rúmið mitt nú nafnið Skeiðvöllurinn. Er reyndar búin að þurfa að styrkja rúmfæturna þar sem þeir voru að gefa sig. Spurning um nýja dýnu...hmm verð að hugsa þetta aðeins. Annars er lítið að frétta, þetta hefur tekið mestallan minn tíma. Er reyndar búin að vera lokka unga pilta í  nudd undanfarið, spurning um að fara rukka fyrir þetta... Svo gleymdi ég víst að segja þér eitt.. Ég er búin að finna ástina í lífinu mínu. Hann heitir Arnar og hann er bara allt sem ég get óskað mér!
En jæja Bjartmar er orðinn óþreyjufullur hérna við hliðina á mér, best að fara stjana aðeins við hann. Ég lofa hinsvegar að fara veita þér meiri athygli.
Þangað til næst, bless kæra dagbók:*
05. maí 2007 klukkan 21:51
Tinna Mark Antonsdóttir
26 athugasemdir
30mars

Blogg baaaara til ađ blogga...

Ok ok, ég er lélegasti bloggari í heimi.. 1.skrefið er allavega að viðurkenna það ;) En ég er líka komin á kaf í myspace heiminn og þá hef ég ekki líka tíma til að blogga...


Þar sem ég hef bara ekkert að segja þá ætla ég að hafa þessa færslu um tvo yndislega drengi sem eru með mér í sjúkraþjálfun.

Köllum þá Einar og Rúnar ;)

Einar og Rúnar eru tveir svona frekar venjulegir ungir drengir með mikinn metnað í lífinu.. Þeir eru báðir á kafi í íþróttum, standa sig vel í skólanum, Rúnar á fallega kærustu og Einar hefur ekki undan að berja af sér kvenfólkið.. Það mætti halda að þeir væru bara perfect... EEEENNNN......

Undir þessu fullkomna yfirborði leynist nefnilega ýmislegt... Þeir eru nefnilega báðir helteknir af einum hlut og er það að hafa gríðarlega mikil áhrif á líf þeirra... Málið er nefnilega.. að þeir eru báðir SJÚÚÚÚKIIIIR í mig! Sko, þetta er ekki eðlilegt.. Það eina sem þeir tala um, hugsa um og sjá er ég..Þeir skiptast á að hringja í mig, senda mér sms, banka upp á eða bara standa fyrir utan og stara upp í gluggan minn...
Þetta er farið að hafa svo mikil áhrif á líf þeirra að þeir eru að hugsa um að leita sér hjálpar...

En þar sem ég er frekar aumingjagóð, þá er ég að leggja mig alla fram við að hjálpa þeim að komast yfir þetta.. Enda eins og ég sagði áðan, þá eru þetta yndislegir drengir og mér þykir voðalega vænt um þá þrátt fyrir allt :) En ef ég hverf einhvern tímann.. Þá vitiði hjá hverjum þið eigið að byrja að leita.....

En jæja, nóg um þessa ágætu drengi :)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -

Tvennt í viðbót....

Ég er að fara til Tyrklands næsta miðvikudag.. SVEKKJANDI ;)
og....
Margrét Elísa og Ásta Árna eru heavy cool!

30. mars 2007 klukkan 10:22
Tinna Mark Antonsdóttir
7 athugasemdir
13febrúar

Hvernig á ađ falla á prófi?

Ok, þetta er náttúrulega bara of fyndið! Stal þessu af B2

1. Taktu með þér kodda. Leggðu þig þangað til svona 5mín eru eftir af prófinu, öskraðu þá.."ahhhllllveg rétt, prófið var í dag!!"

2. Fáðu eintak af prófinu, hlauptu svo út úr stofuni öskrandi "loksins!! loksins!!"

3. Ef þetta er stærðfræðipróf, svaraðu i löngum setningum... ef þetta er ritgerðarpróf, svaraðu í tölum

4. Gerðu pappírsskutlu úr prófinu og miðaðu á kennarann

5. Talaðu alla leið í gegnum prófið! Lestu spurningarnar upphátt og farðu svo að rífast við sjálfan þig hvert rétta svarið skyldi vera. Ef þú ert beðin um að hætta, segðu "jújú, og þú getur bara heyrt mig hugsa" .....talaðu svo um hvað kennarinn er mikið fíbbl.

6. Taktu með klappstýrur með þér.

7. Eftir svona 5mín af prófinu... kallaðu þá á kennarann "hvað er þetta?? ég hef mætt í tíma alla önnina og ég skil ekkert í þessu!!! og hver ert þú eiginlega?!?!

8. Taktu með þér GameBoy tölvu.... spilaðu með volume-ið í botni

9. Neitaðu að svara spurningum... t.d. ég neita að svara þessari spurningu því hún skarðast á við trúarbrögð mín!!

10. Taktu með gæludýr!

11. Hlauptu inní stofuna þegar prófið er rétt byrjað... segðu við kennarann "þeir fundu mig... ég verð að flyja land!" og hlauptu út aftur!

12. Eftir svona 5mín af prófinu, stattu upp, rífðu það niður í pínulitla búta og hentu uppí loftið og öskraðu GLEÐILEG JÓL!! ....biddu kennarann um annað próf og segðu að þú hafir tynt hinu...

13. Skrifaðu svörin með vaxlitum eða vatnsmálningu

14. Mættu í prófið í sandölum, baðslopp og handklæði á hausnum.

15. Fáðu alltíeinu kast af Tourette's Syndrome í miðju prófi...

16. Svaraðu prófinu á einhverju öðru tungumáli! ... ef þú kannt ekki annað tungumál, gerðu þitt eigið tungumál!!

17. Hentu drasli í kennarann þegar hann er ekki að horfa... bentu svo á sessunaut þinn!

18. Strax og kennarinn lætur þig fá prófið... éttu það!

19. Komdu með heilt kvikmyndatökulið með þér og segðu að þú viljir taka prófið upp!

20. Á 5 mínútna fresti, taktu saman allt draslið þitt, sestu annarstaðar og heldur áfram að taka prófið

21. Strikaðu yfir bæði spurningarnar og svörin með svörtum túss!

22. Fáðu prófið, eftir tíu mínútur, dúndraðu prófinu í borðið þitt, öskraðu "til anskotans með þetta próf!!" og labbaðu hetjulega út!

23. Fáðu fólk til að mótmæla prófinu... (með spjöldum og alles)

24. Mættu algjörlega haugafullur!!! (haugafullur: sumsé miklar líkur að þú ælir)

25. Vertu endalaust að segja hversu sexí kennarinn er þennan daginn!

26. Taktu með þér vatnsbyssu

27. Mættu klæddur í riddarabúning! ....með sverð og skjöld!

28. Þegar þú labbar inn... kvartaðu yfir hitanum... strippaðu

29. Reyndu að fá sessunautana til að gera "bylgju"

30. Mættu með hljóðfæri! segðu að það hjálpi þér að hugsa...

Spurning um að taka eitthvað af þessu í prófinu á föstudaginn ;)

- Ástar- og saknaðarkveðju -
13. febrúar 2007 klukkan 22:17
Tinna Mark Antonsdóttir
18 athugasemdir
11febrúar

Ţađ er vonandi ađ ţetta rćtist...

Stjörnuspáin mín á mbl.is í dag...

"Vatnsberi: Þú ert seig/ur. Þú kemur þér í gegngum þetta vonlausa tímabil, til þess að fá hrós í lokin. Haltu aftur af þér í ástum. Það eru bugður á leiðinni. Bíddu með að bregðast við. Hugsaðu þig rækilega um."

Það er vonandi að þetta rætist.. Ótrúlega skondið samt hvað þetta á vel við einmitt í dag :)

En jæja, áfram gakk

- Ástar - og saknaðarkveðjur -
11. febrúar 2007 klukkan 15:51
Tinna Mark Antonsdóttir
2 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Textakubbur

Njóttu ţess ađ lifa lífinu.. ţví ţú lifir jú bara einu sinni... :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ertu međ hvalveiđum á Íslandi ?

Leikur dagsins